Flýtilyklar
NaNa er Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir
Guðbjörg Jóna eða listakonan NaNa eins og hún kallar sig hefur stundað handavinnu alla sína tíð. Þeir sem þekkja hana muna hana varla öðruvísi en með prjóna á lofti eða að föndra við ýmislegt annað. Nú hins vegar hefur vinna með leður, skinn og roð átt hug hennar allan og útbýr hún veski, armbönd og belti úr þessu hráefni svo nokkuð sé nefnt.
Nýjustu fréttir
-
NaNa á Ljósanótt
Almennt - fimmtudagur 26.ágú.10 21:50 - Lestrar 25 - Athugasemdir (0)NaNa ætlar að taka þátt í handverksmarkaði 2. til 5. september 2010 í Keflavík. Markaðurinn verður í stóru tjaldi í miðbænum. Hann verður fimmtudaginn frá kl. 18:00 til kl. 22:00. Á föstudaginn frá kl. 16:00 til kl. 22:00. Laugardaginn kl. 13:00 til kl. 22:00. Á sunnudag ef veður leyfir kl. 13:00 til kl. 16:00. Eins og allir vita sem hafa verið á Ljósanótt í Keflavík þá er þetta frábær skemmtun. Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Handverkshátíðin er líka óvenju glæsileg svo ekki spillir það. Endilega látið ykkur ekki vanta.
Læt eina skemmtilega tösku fylgja með þessarri frétt.
-
NaNa í Hrafnagili
Almennt - þriðjudagur 3.ágú.10 20:08 - Lestrar 86 - Athugasemdir (0)Jæja, þá er komið að því. NaNa fer á handverksmarkaðinn í Hrafnagili. Hún leggur af stað á morgun til að vera klár í að stilla upp á fimmtudag. Sýningin opnar á föstudaginn 13. ágúst og er opin í fjóra daga frá kl. 12:00 til kl. 19:00. Það verður fjölmargt til skemmtunar fyrir utan allt handverksfólkið sem er með allskonar handverk til sýnis og sölu. Ekki spillir að fiskidagarnir á Dalvík eru sömu helgi og það er hægt að slá tvær flugur í einu höggi með því að fara á báða staði. Mynd fylgir af NöNu í sölubás sínum.
-
Kaffi Kjós
Almennt - mánudagur 26.júl.10 20:27 - Lestrar 42 - Athugasemdir (0)NaNa verður á handverksmarkaði sem eigendur Kaffi Kjós standa fyrir við staðinn. Markaðurinn verður opinn frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Það verður jafnframt fjölmargt til skemmtunar alla helgina. Hægt er að sjá hvað það er á kjos.is.
-
Kátt í Kjósinni
Almennt - miðvikudagur 14.júl.10 09:49 - Lestrar 101 - Athugasemdir (0)NaNa verður í Félagsgarði á hátíðinni "Kátt í Kjósinni". Margt verður til skemmtunar í Kjósinni og stutt að fara frá Reykjavík. Hátíðin verður haldin laugardaginn 17. jálí og stendur yfir frá kl. 13:00 til kl. 17:00. T.d. er hin vinsæla rúllumálningakeppni eins og í fyrra. Endilega látið sjá ykkur og skemmtið ykkur konunglega. Hér sjáið þið NöNu að störfum í Félagsgarði árið 2008.
-
NaNa á Akranesi
Almennt - þriðjudagur 1.jún.10 16:33 - Lestrar 176 - Athugasemdir (0)NaNa verður í Safnahúsinu á Akranesi laugardaginn 5. júní. Húsið er opið frá kl:13:00 til 17:00. Það er frábært að skoða safnið og svo er líka fullt af eigulegum hlutum sem eru í boði hjá hinu ýmsu handverksfólki sem er á staðnum. Látið endilega sjá ykkur, þið munuð ekki sjá eftir því.



